Um mig

Nafn:

Blakdeild Þróttar Neskaupstað

Staðsetning:

Neskaupstað

Kennitala:

680787 - 2559

Bankanúmer:

1106 - 26 - 345

Tenglar

Færslur: 2012 Febrúar

25.02.2012 16:52

Þróttur - Stjarnan

Þróttur tók á móti Stjörnunni  laugardaginn 25. febrúar. Búast mátti við jöfnum og spennandi leik. Þróttarstelpurnar tóku hins vegar af öll tvímæli strax í upphafi um hvort liðið væri sterkara. Þróttur vann 25:10, 25:14 og 25:12 og Stjarnan sá aldrei til sólar í leiknum.
       Stjarnan var slegin útaf laginu í upphafi með firnagóðri vörn hjá Þrótti. Ég taldi 6 mjög góð smöss Stjörnustúlkna sem Bobba varði fyrri part fyrstu hrinu og var hreint ekki hætt. Góður varnarleikur Þróttar var því grunnurinn að góðum sigri, fyrst og fremst, en það sáust að sjálfsögðu margar fínar sóknir.
Auk Bobbu spilaði Hulda Elma  glimrandi vel bæði í vörn og sókn, en þessar tvær voru að mínu mati bestar okkar stúlkna í annars jöfnu og vel  leikandi liði. Elma skoraði flest stig Þróttar, 13 alls (9 sm., 3 hv., 1 uppg.),  Lilja 9 (6 s. 2 h. og 1 u.) og Helena einnig 9 (7 s., 1 h. og 1 u.).  Í seinustu hrinunni miðri kom svo nánast nýtt Þróttarlið inná. Á tímabili var aðeins Helena eftir af byrjunarliðinu. Það tók nýliðana smá tíma að komast í gang en svo kláruðu þeir bara leikinn með stæl. Flottur leikur hjá öllu liðinu.
       Stjarnan komst aldrei af stað með sinn besta leik, sem getur vissulega verið mjög góður. Hjá þeim voru þær Hjördís, sem er afburðagóður blakari, og Lilja bestar. Þær stöllur voru stigahæstar í sínu liði, Hjördís með 8 stig (7 s.,  1 h. , 0 u. ) og Lilja með 6 ( 5 s., 1 h. 0 u. ). Liðið í heild small bara aldrei og þá koma ekki tækifæri  góðra leikmanna, fremur en annarra, til að blómstra.
       Dómarar voru þeir Valgeir og Hlöðver og stóðu sig með ágætum

21.02.2012 18:06

Frí á æfingum

Miðvikudaginn 22. febrúar (öskudagur) falla niður eftirtaldar blakæfingar:
  • 1. bekkur kl. 13:10
  • 5. flokkur kl. 15:00
  • 4. flokkur kl. 15:00
  • 2. - 4. bekkur kl. 15:00
  • 3. flokkur kk kl. 16:00
Mánudaginn 27. febrúar falla niður allar æfingar hjá yngriflokkum Þróttar vegna vetrarfrís.

14.02.2012 21:35

Austurlandsmót kvenna í blaki

Laugardaginn 11. febrúar var haldið Austurlandsmót kvenna í blaki. Spilað var í tveimur deildum og voru 7 lið í A - deildinni og 6 lið í B - deildinni.

Í A deildinni voru þessi þrjú lið í efstu 3 sætunum:

1. Þróttur N 2
2. Höttur
3. Þróttur N 3. flokkur 1


Í B deildinni voru þessi 3 lið í efstu 3 sætunum

1. Höttur - Lísur
2. Leiknir 2
3. Þróttur N 3

Mótið gekk í alla staði mjög vel. Frá Þrótti voru það 5 lið sem tóku þátt og voru tvö þeirra skipuð ungum og efnilegum stúlkum úr 3. flokki sem fengu mjög mikið út úr því að spila á svona móti. Gaman var að sjá Leikni 3 en það lið var líka skipað stúlkum úr 3./4. flokki. 

Austurlandsmót karla verður svo haldið í mars/apríl.

14.02.2012 21:21

Strákarnir á bikarmóti

Strákarnir okkar tóku þátt í seinna bikarmóti BLÍ og Bridgestone um helgina á Akureyri. Framundan var keppni milli 5 liða um 2 laus sæti í undanúrslitunum. Eitt liðið mætti ekki til keppni en það var UMFG. 
Strákunum tókst næstum því að gera garðinn frægan. Þeir byrjuðu á því að vinna frækilegan sigur á KA 2 - 1 í fyrsta leiknum á föstudagskvöldi. Því miður náðu þeir ekki að fylgja þessu eftir á móti Fylki á laugardagsmorgni og töpuðu honum 2 - 0. Síðasti leikurinn var svo á móti Stjörnunni en þar náði Stjarnan að merja fram sigur í fyrstu hrinu, 25 - 22 en voru svo mun öruggari í næstu hrinu og unnu hana líka 25 - 17. Þar með var ljóst að strákarnir náðu ekki sæti í Höllinni í mars en stefnan er sett þangað að ári. Það voru því KA og Stjarnan sem náðu að tryggja sér sæti í undanúrslitunum en Þróttur og HK voru búnir að því á fyrra mótinu.

Stelpurnar okkar voru komnar í undanúrslitin ásamt Aftureldingu og á þessu móti um helgina voru það HK og Eik sem unnur sér inn hin tvö sætin. 

Dregið verður í bikarkeppninni í þessari viku.

07.02.2012 16:45

Opið Austurlandsmót í blaki kvenna

Opið Austurlandsmót í blaki kvenna

Laugardaginn 11. febrúar nk verður haldið opið Austurlandsmót í blaki kvenna í íþróttahúsinu í Neskaupstað. Stefnt verður að því að hefja mótið kl. 9:00 og spilað fram eftir degi. Fyrirkomulag mótsins verður ákveðið þegar skráningar liggja fyrir. Stefnt er að því að spila í tveimur deildum og eru lið beðin um að tiltaka deild við skráningu.
Skráningarfrestur er til miðnættist miðvikudaginn 8. febrúar á netfangið throtturnesblak@gmail.com
Skráningargjald er kr. 10.000 kr. á lið en ef fleiri en eitt lið er frá hverju félagi er veittur afsláttur sem hér segir:
  • 2 lið - 9000 kr á lið
  • 3 lið - 8000 kr á lið
  • 4 lið eða fleiri 7000 kr á lið.


Hittumst hress og kát í firðinum fagra
  • 1
Flettingar í dag: 77
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 257062
Samtals gestir: 69209
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 21:38:46