07.02.2012 16:45
Opið Austurlandsmót í blaki kvenna
Opið Austurlandsmót í blaki kvenna
Laugardaginn 11. febrúar nk verður haldið opið Austurlandsmót í blaki kvenna í íþróttahúsinu í Neskaupstað. Stefnt verður að því að hefja mótið kl. 9:00 og spilað fram eftir degi. Fyrirkomulag mótsins verður ákveðið þegar skráningar liggja fyrir. Stefnt er að því að spila í tveimur deildum og eru lið beðin um að tiltaka deild við skráningu.
Skráningarfrestur er til miðnættist miðvikudaginn 8. febrúar á netfangið throtturnesblak@gmail.com
Skráningargjald er kr. 10.000 kr. á lið en ef fleiri en eitt lið er frá hverju félagi er veittur afsláttur sem hér segir:
Hittumst hress og kát í firðinum fagra

- 2 lið - 9000 kr á lið
- 3 lið - 8000 kr á lið
- 4 lið eða fleiri 7000 kr á lið.
Hittumst hress og kát í firðinum fagra
Skrifað af ÞÓJ
21.01.2012 13:59
Ótitlað
Hér er hægt að horfa á eitthvað af leikjunum á mótinu um helgina
http://www.ustream.tv/channel/blak-test
http://www.ustream.tv/channel/blak-test
Skrifað af SÞÞ
03.01.2012 21:48
Æfingar hefjast mánudaginn 9. janúar
Æfingar hjá blakdeild Þróttar hefjast mánudaginn 9. janúar samkvæmt æfingatöflu. Hittumst hress og kát.
Skrifað af ÞÓJ
29.12.2011 08:36
Sigurvegarar
Bæði skemmtimótið - og fitubrennslumótið gekk vel fyrir sig. Að vísu voru ekki mjög margir unglingar en þetta var í fyrsta sinn sem þetta mót var haldið og við stefnum að því að hafa þetta árvissan atburð, jólaskemmtimót fyrir 12 - 15 ára (7. - 10. bekk). Sigurvegarar á því móti voru þau Katrín Lilja Sigurjónsdóttir og Filip Sakaluk. Þau fengu í vinning pizzu í Olís og vítamíndrykk frá Leppin.

Á fitubrennslumótinu voru það Ísak Fannar og Erla Bjarný sem misstu mest en Ísak missti 4,4 kg og Erla 1,8 kg. Þau fengu í vinning vörur frá Leppin. Stigahæstu einstaklingarnir voru svo Guðni Valgeir og Bobba en þau fengu gjafabréf til flugeldakaupa í vinning.
Til hamingju með þetta öllsömul
Skrifað af ÞÓJ
28.12.2011 10:44
Jólaskemmti - og fitubrennslumótið í dag
Minnum á mótin í dag.
Jólaskemmtimót kl. 14:00 fyrir unglingana 12 - 15 ára (7. - 10. bekkur). Veitt verða verðlaun fyrir stigahæsta strákinn og stigahæstu stelpuna.
Kl. 18:00 hefst svo mótið fyrir þá sem eldri eru. Þar verða veitt verðlaun fyrir stigahæsta karlinn og stigahæstu konuna og svo verða auðvitað líka verðlaun fyrir þann karl og þá konu sem missir hvað mest af kílóum ;o)
Keppnisgjald er kr. 1000 á báðum mótunum. Hægt er að senda skráningu á throtturnesblak@gmail.com.
Skrifað af ÞÓJ
27.12.2011 22:40
Helena Kristín íþróttamaður Þróttar
Í dag var Helena Kristín valin íþróttamaður Þróttar. Blakdeild Þróttar óskar henni innilega til hamingju með þennan flotta titil í titlasafnið sitt.
Eftirtaldir íþróttamenn voru tilnefndir úr sinni íþróttagrein og óskar blakdeildin þeim til hamingju með tilnefningarnar;
Eftirtaldir íþróttamenn voru tilnefndir úr sinni íþróttagrein og óskar blakdeildin þeim til hamingju með tilnefningarnar;
- Anton Bragi Jónsson - knattspyrna
- Hekla Liv Maríasdóttir - sund
- Lilja Tekla Jóhannsdóttir - skíði
Þá óskum við Heiðu Elísabetu Gunnarsdóttur (litlu systur Helenu) til hamingju með viðurkenningu sem hún fékk fyrir góðan árangur á frjálsíþróttavellinum í sumar en hún stóð sig mjög vel á unglingalandsmótinu á Egilsstöðum í sumar.
Til hamingju Helena Kristín
Skrifað af ÞÓJ
Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 126
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 245362
Samtals gestir: 65553
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 03:00:14